08.03.2013 12:59
Skíðaleikjahátíð 17. mars
Skíðafélag Strandamanna bætir við viðburði um Strandagönguhelgina og býður til Skíðaleikjahátíðar sunnudaginn 17. mars kl. 10-12. Ef nægur snjór verður á Hólmavík verður hátíðin haldin þar en annars í Selárdal ef ekki verður nægur snjór á Hólmavík. Farið verður í alla skemmtilegustu skíðaleikina t.d. stórfiskaleik, hákarlaleik, skottaleik og fleiri frábæra leiki einnig verða settar upp þrautabrautir. Hátíðin er öllum opin sem hafa gaman af skemmtilegum skíðaleikjum og eru jafnt ungir sem aldnir velkomnir. Eftir hátíðina er þátttakendum boðið á pizzahlaðborð frá café Riis fyrir 1.000 kr. á mann. Nánari upplýsingar veitir Ragnar í síma 8933592. Skráning á hátíðina er hjá Aðalbjörgu Óskarsdóttir á netfangið allaoskars@gmail.com en hún tekur einnig á móti skráningum í Strandagönguna. Skráningar á skíðaleikjahátíðina þurfa að berast í síðasta lagi miðvikudaginn 13. mars.