09.03.2014 13:07
Brautin í Strandagöngunni
Allt stefnir í góða Strandagöngu næstkomandi laugardag, nægur snjór er í dalnum og góðar aðstæður. Í 10 og 20 km vegalengdunum verður genginn 10 km hringur sem verður mjög svipaður og var í göngunni í fyrra, en þá var gengið fram að Gilsstöðum. Í dag sunnudaginn 9. mars verður troðin braut í Selárdal tilbúin um kl. 16. Skráning í Strandagönguna fer vel af stað en skráningarnar skal senda á netfangið allaoskars@gmail.com