13.03.2014 08:29
Sævar Birgisson með fyrirlestur
Sævar Birgisson ólympíufari verður meðal þátttakenda í Strandagöngunni 2014. Sævar er nýlega kominn frá Ólympíuleikunum í Sotsí í Rússlandi þar sem hann var fyrsti Íslendingurinn í tuttugu ár til að taka þátt í Skíðagöngu á Ólympíuleikum. Eftir gönguna verður Sævar með stuttan fyrirlestur í Félagsheimilinu á Hólmavík þar sem hann mun segja frá þátttöku sinni á Ólympíuleikunum og hann mun einnig tala um markmiðssetningu og leiðir til að ná markmiðum sínum. Fyrirlesturinn hefst kl. 15.40.