07.03.2018 23:46
Góð veðurspá fyrir Strandagönguna
Nú styttist í Strandagönguna og skráning gengur vel. Við minnum á að skráningargjaldið hækkar föstudaginn 9. mars en skráning fer fram á netskraning.is Spáin fyrir laugardaginn er góð í Selárdal en yr.no spáir ANA 4 m/s, -4°c frost, úrkomulaust og sólskin með köflum. Genginn verður auðveldur 5 km hringur, í brautinni er að mestu leyti nýr snjór og því gæti t.d. blár extra baukur verið málið sem festuáburður í Strandagöngunni en hann virkaði mjög vel hjá okkur á skíðaæfingu í dag.
07.03.2018 23:33
Dagskrá Strandagöngunnar 2018
Laugardagur 10. mars:
kl. 10 Afhending á númerum og flögum hefst
kl. 11 Skráningu lýkur
kl. 11.30 start í 1 km vegalengd
kl. 12 start í 5, 10 og 20 km vegalengdum
eftir kl. 14 sturtur og heitir pottar í íþróttamiðstöðinni á Hólmavík
kl. 15.30 kaffihlaðborð og verðlaunaafhending í Félagsheimilinu á Hólmavík
06.03.2018 21:05
Helstu gististaðir
Helstu gististaðir í nágrenni Selárdals eru:
Hótel Laugarhóll Bjarnarfirði 510 Hólmavík sími: 6985133
Gistiheimilið Malarhorn Grundargötu 17 520 Drangsnes sími: 8536520
Gistiþjónusta Sunnu Drangsnesi sími: 8461640 sunna@drangsnes.is
Iceland Visit Hostel Hafnarbraut 25,Hólmavík sími: 8606670
Finna Hótel Borgabraut 4 510 Hólmavík sími: 8561911
Steinhúsið Höfðaötu 1 510 Hólmavík sími: 8561911 steinhusid@simnet.is
Ferðaþjónustan Kirkjubóli 510 Hólmavík sími: 4513474 kirkjubol@strandir.is
Broddanes hostel Broddanesi 510 Hólmavík sími: 6181830
Gististaðir í Reykhólasveit:
Álftaland Reykhólum sími: 8927558/8632363
Hellisbraut 14 Reykhólum sími: 8937787
Miðjanes sími: 6903825
Hótel Bjarkalundur sími: 4347762
06.03.2018 00:13
Skráningargjaldið hækkar 9. mars
Við minnum á að skráningargjaldið í Strandagönguna hækkar 9. mars og því um að gera að skrá sig sem fyrst. Skráning í Strandagönguna 2018 fer fram á netskráning.is
Skráningargjald til 9. mars
20 km 5.000 kr
10 km 4.000 kr
5 km 3.000 kr
15 ára og yngri 1.000 kr
Skráningargjald 9.-10. mars
20 km 8.000 kr
10 km 6.000 kr
5 km 4.000 kr
15 ára og yngri 3.000 kr
27.02.2018 00:02
Skráning er hafin í Strandagönguna 2018
Skráning er hafin í Strandagönguna 2018. Hér er hægt að skrá sig.
23.02.2018 23:02
Skíðaleikjadagur
Skíðafélag Strandamanna mun halda hinn árlega skíðaleikjadag þann 11. mars kl. 11-13 í Selárdal í tengslum við Strandagönguna. Skíðaleikjadagurinn er fyrir börn á öllum aldri þar sem markmiðið er að skemmta sér saman í skemmtilegustu skíðaleikjunum auk þess sem þrautabrautir verða á svæðinu. Lokapunkturinn í skíðaleikjadeginum verður pitsahlaðborð frá Café Riis í skíðaskálanum í Selárdal. Þátttökugjald er kr. 2.000 og innifalið í því er pitsahlaðborðið, skráningar á skíðaleikjadaginn skal senda í tölvupósti á netfangið allaoskars@gmail.com, skráningu lýkur 9. mars.
23.01.2018 13:16
24. strandagangan
Næsta Strandaganga verður haldin 10. mars 2018. Þetta verður í 24. skiptið sem Strandagangan verður gengin en hún hefur verið árviss viðburður frá fyrstu göngunni sem haldin var árið 1995.
11.03.2017 22:45
Úrslit Strandagöngunnar
Úrslit Strandagöngunnar 2017 er að finna á timataka.net, myndir frá göngunni er m.a. að finna á mundipals.123.is
11.03.2017 09:28
Starti í Strandagöngunni frestað til kl. 14
Starti í Strandagöngunni er seinkað til kl. 14. Það hefur snjóað mikið í nótt og þarf að moka bílastæðið aftur auk þess sem illa gengur að troða brautina þar sem snjórinn er blautur og þungur. Brautin verður stytt niður í 5 km hring. Start í 1 km og forstart í 20 km verður kl. 14 og start í 5, 10 og 20 km kl. 14.30
09.03.2017 11:29
Dagskrá Strandagöngunnar
Dagskrá Strandagöngunnar 2017:
Föstudagur 10. mars:
Kl. 18.30-21 Pastaveisla og afhending númera í Félagsheimilinu á Hólmavík
Laugardagur 11. mars:
kl. 11 Skráningu lýkur
kl. 11.30 start í 1 km vegalengd
kl. 12 start í 5, 10 og 20 km vegalengdum
eftir kl. 14 sturtur og heitir pottar í íþróttamiðstöðinni á Hólmavík
kl. 15.00 kaffihlaðborð og verðlaunaafhending í Félagsheimilinu á Hólmavík
Í ár erum við með nýjung í Strandagöngunni sem er pastahlaðborð kl. 18.30-21 á morgun föstudag.
Spáin fyrir laugardaginn fer batnandi þar sem spáð er kl. 12 á laugardag á Þröskuldum 2°c hita, suðvestan 2 m/s og hálfskýjað. Við viljum þó biðja fólk um að fylgjast vel með fréttum hér á síðunni, á facebook sem og veðurspám þar sem úrkomusvæði á að ganga yfir aðfaranótt laugardagsins.
09.03.2017 11:24
Gististaðir í Reykhólasveit
Við bendum fólki á að einnig eru gististaðir í Reykhólasveit þaðan sem stutt er á Þröskulda:
Álftaland Reykhólum sími: 8927558/8632363
Hellisbraut 14 Reykhólum sími: 8937787
Miðjanes sími: 6903825
Hótel Bjarkalundur sími: 4347762
07.03.2017 12:10
Helstu gististaðir
Helstu gististaðir á Hólmavík og nágrenni eru:
Hótel Laugarhóll Bjarnarfirði 510 Hólmavík sími: 6985133
Gistiheimilið Malarhorn Grundargötu 17 520 Drangsnes sími: 8536520
Gistiþjónusta Sunnu Drangsnesi sími: 8461640 sunna@drangsnes.is
Iceland Visit Hostel Hafnarbraut 25,Hólmavík sími: 8606670
Finna Hótel Borgabraut 4 510 Hólmavík sími: 8561911
Steinhúsið Höfðaötu 1 510 Hólmavík sími: 8561911 steinhusid@simnet.is
Ferðaþjónustan Kirkjubóli 510 Hólmavík sími: 4513474 kirkjubol@strandir.is
Broddanes hostel Broddanesi 510 Hólmavík sími: 6181830
Stutt er af Þröskuldum í Reykhólasveit þar sem einnig eru gististaðir
06.03.2017 23:00
Kennitölur fylgi með skráningu
Við viljum biðja fólk um að láta kennitölur fylgja með skráningum. Í Strandagöngunni verður notuð flögutímataka og því betra að kennitalan fylgi með, einnig verður hægt að fá tímann sendan í gsm-símanúmer að keppni lokinni.
Veðurspáin fyrir helgina lofar góðu, um hádegi á laugardaginn er spáð hita um frostmark, hægviðri og hálfskýjað á Þröskuldum.
Við minnum fólk á að skrá sig tímanlega því skráningargjaldið hækkar miðvikudaginn 8. mars
26.02.2017 23:08
Skráning er hafin í Strandagönguna
Skráning er hafin í 23. Strandagönguna. Lítill snjór er í Selárdal en nægur snjór á Þröskuldum þannig að eins og staðan er í dag er líklegast að gangan verði haldin á Þröskuldum 11. mars.
Skráningar skal senda í tölvupósti til Aðalbjargar Óskarsdóttur ritara Skíðafélags Strandamanna á netfangið allaoskars@gmail.com upplýsingar sem þurfa að vera í skráningunni eru:
Nafn keppanda
Hérað
Kennitala
Vegalengd
Gsm-símanúmer
Þátttökugjald til 7. mars:
20 km: 5.000 kr
10 km: 4.000 kr
5 km: 3.000 kr
15 ára og yngri 1.000 kr
Þátttökugjald 8.-10. mars:
20 km 7.000 kr
10 km 5.000 kr
5 km 4.000 kr
15 ára og yngri 2.000 kr
Þátttökugjald 11. mars (keppnisdagur)
20 km 10.000 kr
10 km 7.000 kr
5 km 5.000 kr
15 ára og yngri 3.000 kr