Færslur: 2013 Febrúar
26.02.2013 21:18
Skráning er hafin í Strandagönguna
Skráning er hafin í Strandagönguna, vinsamlegast sendið skráningar í tölvupósti á netfangið allaoskars@gmail.com Í skráningunni þurfa að koma fram eftirfarandi upplýsingar: Nafn keppanda, félag eða hérað sem keppt er fyrir, fæðingarár, vegalengd, einnig er ágætt að láta fylgja með símanúmer í gemsa. Við minnum fólk einnig á að skrá sig í sveitakeppnina sem er í öllum vegalengdum göngunnar.
Þrátt fyrir hláku undanfarna daga eru aðstæður í Selárdal góðar og nægur snjór í dalnum. Seinnipartinn í dag lögðum við 3 km braut og var fín mæting á skíðaæfingu dagsins.
- 1