Færslur: 2017 Mars
11.03.2017 22:45
Úrslit Strandagöngunnar
Úrslit Strandagöngunnar 2017 er að finna á timataka.net, myndir frá göngunni er m.a. að finna á mundipals.123.is
11.03.2017 09:28
Starti í Strandagöngunni frestað til kl. 14
Starti í Strandagöngunni er seinkað til kl. 14. Það hefur snjóað mikið í nótt og þarf að moka bílastæðið aftur auk þess sem illa gengur að troða brautina þar sem snjórinn er blautur og þungur. Brautin verður stytt niður í 5 km hring. Start í 1 km og forstart í 20 km verður kl. 14 og start í 5, 10 og 20 km kl. 14.30
09.03.2017 11:29
Dagskrá Strandagöngunnar
Dagskrá Strandagöngunnar 2017:
Föstudagur 10. mars:
Kl. 18.30-21 Pastaveisla og afhending númera í Félagsheimilinu á Hólmavík
Laugardagur 11. mars:
kl. 11 Skráningu lýkur
kl. 11.30 start í 1 km vegalengd
kl. 12 start í 5, 10 og 20 km vegalengdum
eftir kl. 14 sturtur og heitir pottar í íþróttamiðstöðinni á Hólmavík
kl. 15.00 kaffihlaðborð og verðlaunaafhending í Félagsheimilinu á Hólmavík
Í ár erum við með nýjung í Strandagöngunni sem er pastahlaðborð kl. 18.30-21 á morgun föstudag.
Spáin fyrir laugardaginn fer batnandi þar sem spáð er kl. 12 á laugardag á Þröskuldum 2°c hita, suðvestan 2 m/s og hálfskýjað. Við viljum þó biðja fólk um að fylgjast vel með fréttum hér á síðunni, á facebook sem og veðurspám þar sem úrkomusvæði á að ganga yfir aðfaranótt laugardagsins.
09.03.2017 11:24
Gististaðir í Reykhólasveit
Við bendum fólki á að einnig eru gististaðir í Reykhólasveit þaðan sem stutt er á Þröskulda:
Álftaland Reykhólum sími: 8927558/8632363
Hellisbraut 14 Reykhólum sími: 8937787
Miðjanes sími: 6903825
Hótel Bjarkalundur sími: 4347762
07.03.2017 12:10
Helstu gististaðir
Helstu gististaðir á Hólmavík og nágrenni eru:
Hótel Laugarhóll Bjarnarfirði 510 Hólmavík sími: 6985133
Gistiheimilið Malarhorn Grundargötu 17 520 Drangsnes sími: 8536520
Gistiþjónusta Sunnu Drangsnesi sími: 8461640 sunna@drangsnes.is
Iceland Visit Hostel Hafnarbraut 25,Hólmavík sími: 8606670
Finna Hótel Borgabraut 4 510 Hólmavík sími: 8561911
Steinhúsið Höfðaötu 1 510 Hólmavík sími: 8561911 steinhusid@simnet.is
Ferðaþjónustan Kirkjubóli 510 Hólmavík sími: 4513474 kirkjubol@strandir.is
Broddanes hostel Broddanesi 510 Hólmavík sími: 6181830
Stutt er af Þröskuldum í Reykhólasveit þar sem einnig eru gististaðir
06.03.2017 23:00
Kennitölur fylgi með skráningu
Við viljum biðja fólk um að láta kennitölur fylgja með skráningum. Í Strandagöngunni verður notuð flögutímataka og því betra að kennitalan fylgi með, einnig verður hægt að fá tímann sendan í gsm-símanúmer að keppni lokinni.
Veðurspáin fyrir helgina lofar góðu, um hádegi á laugardaginn er spáð hita um frostmark, hægviðri og hálfskýjað á Þröskuldum.
Við minnum fólk á að skrá sig tímanlega því skráningargjaldið hækkar miðvikudaginn 8. mars
- 1