06.03.2017 23:00
Kennitölur fylgi með skráningu
Við viljum biðja fólk um að láta kennitölur fylgja með skráningum. Í Strandagöngunni verður notuð flögutímataka og því betra að kennitalan fylgi með, einnig verður hægt að fá tímann sendan í gsm-símanúmer að keppni lokinni.
Veðurspáin fyrir helgina lofar góðu, um hádegi á laugardaginn er spáð hita um frostmark, hægviðri og hálfskýjað á Þröskuldum.
Við minnum fólk á að skrá sig tímanlega því skráningargjaldið hækkar miðvikudaginn 8. mars