24.02.2019 20:06
Úrslit á timataka.net
Þá er stórri skíðagönguhelgi á Ströndum lokið en Strandagangan fór fram í gær í Selárdal í mjög góðu veðri. Úrslit úr göngunni eru á timataka.net Í dag var einnig mikið um að vera í Selárdal þar sem boðið var upp á skíðaleiki fyrir krakka og skíðaferð fram að Þjóðbrókargili í Selárdal. Veðrið lék einnig við okkur í dag, hægviðr, sólskin með köflum og 1 stigs hiti. Við þökkum öllu því góða fólki sem kom til okkar um helgina til að taka þátt í Strandagöngunni og skíðaleikjadeginum kærlega fyrir komuna og vonumst til að sjá ykkur öll aftur á næsta ári í 26. Strandagöngunni. Okkar frábæra starfsfólk sem vann að framkvæmd Strandagöngunnar fá kærar þakkir fyrir vel unnin störf.