Færslur: 2019 Febrúar
24.02.2019 20:06
Úrslit á timataka.net
Þá er stórri skíðagönguhelgi á Ströndum lokið en Strandagangan fór fram í gær í Selárdal í mjög góðu veðri. Úrslit úr göngunni eru á timataka.net Í dag var einnig mikið um að vera í Selárdal þar sem boðið var upp á skíðaleiki fyrir krakka og skíðaferð fram að Þjóðbrókargili í Selárdal. Veðrið lék einnig við okkur í dag, hægviðr, sólskin með köflum og 1 stigs hiti. Við þökkum öllu því góða fólki sem kom til okkar um helgina til að taka þátt í Strandagöngunni og skíðaleikjadeginum kærlega fyrir komuna og vonumst til að sjá ykkur öll aftur á næsta ári í 26. Strandagöngunni. Okkar frábæra starfsfólk sem vann að framkvæmd Strandagöngunnar fá kærar þakkir fyrir vel unnin störf.
21.02.2019 23:16
Dagskrá Strandagöngunnar
Dagskrá Strandagöngunnar 2019
Laugardagur 23. febrúar:
Kl. 9-11.30 Afhending keppnisgagna í Selárdal
kl. 11.30 start í 1 km vegalengd og forstart í 20 km
kl. 12 start í 5, 10 og 20 km vegalengdum
kl. 15.30 kaffihlaðborð og verðlaunaafhending í Félagsheimilinu á Hólmavík
Sunnudagur 24. febrúar:
Kl. 11-13 Skíðaleikjadagur í Selárdal
Kl. 11 Skíðaferð í Selárdal frá Brandsholti að Þjóðbrókargili
Eftir skíðaferðina og skíðaleikjadaginn verður pítsahlaðborð í skíðaskálanum í Selárdal
Eftir Strandagönguna býður Strandabyggð og Íþróttamiðstöðin á Hólmavík þátttakendum í Strandagöngunni að fara frítt í sturtu í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík en því miður er ekki hægt að fara í heitu pottana vegna framkvæmda í Íþróttamiðstöðinni, einnig er hægt að fara á Drangsnes í sturtu og heita potta.
Það verður genginn 5 km hringur í Strandagöngunni á laugardaginn, mjög svipuð leið og í Strandagöngunni 2018, heildarklifur á 5 km hring er 60 metrar sem gera 120 metra í 10 vegalengdinni og 240 metra í 20 km göngunni.
21.02.2019 11:11
Staðan í gærkvöldi
Staðan er þannig að í gær var troðinn 10 km hringur í Selárdal, það var blautur nýr snjór í brautinni. það er spáð hlýindum næstu daga og kaflar af 10 km hringnum eru tæpir með snjó þannig að líklegt er að í Strandagöngunni á laugardaginn verði því genginn 5 km hringur.
Veðurspár fyrir laugardaginn eru þokkalegar en flestar spárnar eru á því að vindátt verði hæg sunnan eða suðvestan, hiti verði 3-4 gráður og lítil úrkoma. Suðlægar áttir eru nokkuð hagstæðar fyrir okkar því Selárdalur er skjólgóður í þeim áttum.
Það er rétt að ítraka það að eins og stendur í skilmálum við skráningu í Strandagönguna eru þátttökugjöld ekki endurgreidd.
Það stefnir í algjöra metþátttöku í Strandagöngunni því tæplega 170 keppendur eru skráðir í gönguna. Fjölmennasta Strandagangan hingað til var árið 1997 með 111 keppendum og í fyrra tóku 90 manns þátt í göngunni.
Við setjum inn meiri fréttir af undirbúningi göngunnar í kvöld
19.02.2019 22:30
Strandagangan eftir fjóra daga
Nú eru aðeins fjórir dagar í 25. Strandagönguna og undirbúningur fyrir gönguna gengur vel. Í dag var troðin 7,2 km braut í Selárdal sem stefnt er að því að lengja á morgun þannig að genginn verður 10 km hringur í lengri vegalengdum Strandagöngunnar. Það er nánast eingöngu nýr snjór í brautinni og aðstæður eins og best gerist.
Við minnum á skíðasunnudaginn daginn eftir Strandagönguna þar sem farið verður í skemmtilegustu skíðaleikina, skíðaferð á Selárdal og pítsahlaðborð í lokin. Skráningar sendast á netfangið allaoskars@gmail.com
Veitingastaðir á Hólmavík verða opnir um helgina, Café Riis verður opið á föstudagskvöldið, nánari upplýsingar hjá Báru (gsm 8979756). Á Restaurant Galdur er opið til kl. 18 á föstudag en til kl. 21 á laugardaginn, nánari upplýsingar og pantanir fyrir hópa hjá Önnu (gsm 8976525)
18.02.2019 20:40
Helstu gististaðir í nágrenni Selárdals
Helstu gististaðir í nágrenni Selárdals eru:
Hólmavík og nágrenni:
Iceland Visit Hostel Hafnarbraut 25,Hólmavík sími: 8606670
Finna Hótel Borgabraut 4 510 Hólmavík sími: 8561911
Steinhúsið Höfðaötu 1 510 Hólmavík sími: 8561911 steinhusid@simnet.is
Kríukot Gistiheimili Hafnarbraut 17 Hólmavík sími: 8926737
Ferðaþjónustan Kirkjubóli 510 Hólmavík sími: 4513474 kirkjubol@strandir.is
Broddanes hostel Broddanesi 510 Hólmavík sími: 6181830
Drangsnes:
Gistiheimilið Malarhorn Grundargötu 17 520 Drangsnes sími: 8536520
Gistiþjónusta Sunnu Drangsnesi sími: 8461640 sunna@drangsnes.is
Bjarnarfjörður:
Hótel Laugarhóll Bjarnarfirði 510 Hólmavík sími: 6985133
Reykhólasveit:
Álftaland Reykhólum sími: 8927558/8632363
Hellisbraut 14 Reykhólum sími: 8937787
Miðjanes sími: 6903825
Hótel Bjarkalundur sími: 4347762
17.02.2019 22:39
Aldurstakmark í Strandagönguna
Stjórn Skíðafélags Strandamanna hefur sett reglur um aldurstakmark í 20 km vegalengd í Strandagöngunni. Aldurstakmarkið er að viðkomandi sé 13 ára eða eldri á keppnisárinu. 13-16 ára einstaklingar sem ganga 20 km vegalengd í Strandagöngunni greiði sama skráningargjald og fullorðnir og geti unnið til verðlauna í göngunni eins og aðrir þátttakendur, þar á meðal bikar fyrir fyrstu konu í mark og bikar fyrir fyrsta karl í mark í 20 km vegalengdinni.
15.02.2019 08:57
Uppselt í Strandagönguna
Við erum búin að fylla upp í hámarksfjölda þátttakenda í Strandagöngunni 2019 sem er 150 þátttakendur. Ef þú vilt vera á biðlista Hafðu þá samband við okkur með því að senda tölvupóst á netfangið rosmundurn@gmail.com
12.02.2019 22:11
Skráning í Strandagönguna gengur vel
Við minnum á að skráning í Strandagönguna fer fram á netskraning.is skráningin gengur vel og eru nú þegar um 80 keppendur skráðir í Strandagönguna. Við höfum ákveðið að takmarka fjölda keppenda í Strandagönguna við 150 samtals í allar vegalengdir. Við minnum á að skráningargjaldið hækkar 15. febrúar, það er því um að gera að skrá sig sem fyrst.
Aðstæður í Selárdal eru góðar, 5 km hringurinn hefur verið troðinn í nokkrum sinnum og talsvert hefur bæst við af snjó undanfarna daga en vantar þó aðeins meiri snjó til að hægt sé að gera 10 km brautina fram að Gilsstöðum. 5 km brautin verður mjög svipuð og var í Strandagöngunni 2018.
Við stefnum að því að setja reglulega inn fréttir af undirbúningi göngunnar næstu daga hér á þessa síðu sem og á nýju facebooksíðu Strandagöngunnar.
12.02.2019 21:15
Skíðaleikjadagur og skíðaferð
Skíðaleikjadagurinn verður haldinn í Selárdal sunnudaginn 24. febrúar kl. 11-13 daginn eftir Strandagönguna eins og verið hefur undanfarin ár. Á skíðaleikjadeginum er öll keppni lögð til hliðar og geta börn á öllum aldri skemmt sér saman í skemmtilegustu skíðaleikjunum og í þrautabrautum við allra hæfi. Leikjunum verður stjórnað af skíðagönguþjálfurum Skíðafélags Strandamanna.
Fyrir fullorðna fólkið ætlum við að bjóða upp á skíðaferð fram á Selárdal að hinu mikilfenglega Þjóðbrókargili og jafnvel lengra inn dalinn. Leiðsögumaður í ferðinni verður Jónína Pálsdóttir.
Þegar skíðaferðinni og skíðaleikjunum lýkur er hægt að komast í heita potta í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík og í lokin verður pítsahlaðborð í Félagsheimilinu á Hólmavík.
Skráið ykkur á skíðaleikjadaginn eða í skíðaferðina með því að senda tölvupóst á netfangið allaoskars@gmail.com
Þátttökugjald fyrir börn í skíðaleikjadaginn og pítsahlaðborð er 1.000 kr og fyrir fullorðna í skíðaferð og/eða pítsahlaðborð 2.000 kr.
08.02.2019 21:48
Undirbúningur fyrir Strandagönguna gengur vel
Undirbúningur fyrir Strandagönguna sem verður haldin í Selárdal 23. febrúar gengur vel. Í gær var troðinn 5 km hringur í Selárdal sem er nánast sama leið og gengin var í Strandagöngunni 2018. Skráning í Strandagönguna fer fram í gegnum netskraning.is og hafa margar skráningar bæst við undanfarna daga, við minnum á að skráningargjaldið í gönguna hækkar 15. febrúar þannig að það er um að gera að skrá sig fyrir þann tíma.
- 1